Hildur Sif Thorarensen, rithöfundur og verkfræðingur, skellti sér í bólusetningu gegn COVID-19 í Rússlandi á dögunum. Hildur hvetur íslensk stjórnvöld til að ganga til viðræðna við Rússa um kaup á bóluefninu og flýta þannig fyrir bólusetningu landsmanna.
Hildur ræðir þetta í athyglisverðu spjalli við Morgunblaðið.
Hildur er búsett í Noregi ásamt manni sínum, Dmitri Antonov, sem er af rússnesku og eistnesku bergi brotinn en með sterkar rætur á Íslandi.
Bólusetningin á dögunum gekk vel fyrir sig og segist Hildur ekki hafa fundið fyrir neinu, ekki einu sinni stungunni. Sólarhring eftir bólusetninguna er Hildur við góða heilsu og finnur ekki fyrir neinum aukaverkunum. Hún vill að íslensk stjórnvöld ræði við Rússa um kaup á bóluefninu.
„Reynsla þeirra sem við höfum verið í sambandi við, bæði lækna og annarra, hérlendis og erlendis, er mjög góð og eftir að Lancet birti grein um ágæti bóluefnisins er erfitt að sjá hvað sé í raun því til fyrirstöðu að Ísland stökkvi á vagninn og fjárfesti í rússneskri eðalvöru,“ segir hún.
Hildur birti svo myndband á Facebook-síðu sinni þar sem fylgjast má með bólusetningunni.