Hildur Lilliendahl Viggósdóttir er meðal þeirra sem virðast vera orðnir þreyttir á COVID-19 faraldrinum en hún greinir frá því á Twitter að hún sé nú á leiðinni heim frá Svíþjóð. Fyrir ári síðan var Hildur ein af fjölmörgum ferðamönnum sem sátu fastir í útgöngubanni á Kanaríeyjum.
„Í dag er eitt ár síðan ég lagði af stað í það sem átti að vera tveggja vikna heimsókn til foreldra minna á Kanaríeyjum. Ég komst loksins heim í einkaflugi sem vinur minn gaf okkur fjölskyldunni 25. júní. Einhvern veginn hélt ég þá að þetta væri að verða búið,“ segir Hildur í Twitter færslu sinni.
„Nú sit ég á flugvelli í Svíþjóð eftir að hafa fylgt ástvini í nauðsynlega meðferð, vopnuð grímu og spritti og neikvæðu PCR testi og resting bitch face og er á leiðinni í fimm daga sóttkví í hótelíbúð í Reykjavík svo fjölskyldan mín þurfi ekki að umgangast mig. Þetta ár hefur sannarlega verið undarlegt.“
Samkvæmt gildandi reglum á landamærunum þurfa allir einstaklingar sem koma til landsins að framvísa neikvæðu PCR-prófi áður en haldið er til Íslands. Þá þarf að fara í tvöfalda skimun með sóttkví á milli.
Enn eru smit að greinast á landamærunum og hafa sóttvarnayfirvöld varað við hvers kyns ferðalögum.