Hildur Lilliendahl allt annað en sátt: „WHAT THE ACTUAL FUCK ER ÞETTA SKÍTAPAKK?“

Hildur Lilliendahl, baráttukona og verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, er allt annað en sátt við ummæli lögfræðingsins Ómars R. Valdimarssonar og fjölmiðlakonunnar Ernu Ýrar Öldudóttur.

Um fátt hefur verið meira rætt undanfarna daga en KSÍ-skandalinn og virðast flestir á þeirri skoðun að KSÍ hafi verið með allt niðrum sig í málinu.

Hildur deildi skjáskotum af færslum Ómars og Ernu á Facebook, en Ómar deildi færslu sem Erna skrifaði. Í færslu sinni sagði Erna Ýr: „Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, sem KSÍ dramað hverfist um, virðist vera alveg svakalega óheppin í samskiptum sínum við karlmenn. Þvílíkt lífshlaup! Við ættum að biðja fyrir henni.“

Ómar deildi færslu hennar með eftirfarandi orðum:

Hversu oft getur eldingu slegið niður á sama stað? Í tilfelli Þórhildar Gyðu Arnardóttur, sem er fórnarlamb feðraveldisins í KSÍ-málinu, er svarið þrisvar. Það þarf greinilega að vernda þessa stúlku mjög vandlega, því hún virðist ekki geta stungið út nefinu án þess að trylltir útsendarar feðraveldisins geri hana að fórnarlambi sínu.“

Erna Ýr hafði deilt gamalli frétt Nútímans þar sem greint var frá því að önnur kona hefði stigið fram og sakað grínistann og sjónvarpsmanninn Björn Braga Arnarson um kynferðislega áreitni eftir umtalað atvik á Akureyri árið 2018. Umrædd kona var Þórhildur Gyða.

Hildur er allt annað en sátt við færslur Ómars og Ernu Ýrar og segir í færslu á Twitter:

„WHAT THE ACTUAL FUCK ER ÞETTA SKÍTAPAKK?“

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, skrifar athugasemd við færslu Hildar og tekur undir með henni. Hann segir:

„Eins og sé óhugsandi að 25 ára kona hafi í þrjú ótengd skipti orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi? Kannski bara frekar algengt?“

Hildur segir að það sé vanmat hjá Andrési og segir: „Mætti segja mér að 25 skipti væri alveeg frekar algengt.“