Þáttur fréttaskýringaþáttarins Kveiks sem sýndur var á RÚV í kvöld hefur vakið mikla athygli en þar er rætt við leikarann Þóri Sæmundsson sem hefur ekki fengið vinnu eftir að upp komst að hann hefði sent typpamynd af sér út í bæ. Hélt hann að myndin væri að fara á 18 ára stúlkur sem sögðust síðar vera 15 ára, aldrei hefur komið í ljós hver í raun fékk myndina.
Hann segir í þættinum að að það gæti hafa verið réttlætanlegt að reka hann úr Þjóðleikhúsinu vegna lauslætis og almenns dólgsháttar, „sem einhvers konar dæmi fyrir okkur,“ segir hann.
„En fjórum árum seinna: allslaus og ég er ekkert að ýkja það,“ segir hann. „Ég á ekki neitt lengur og ég er stórskuldugur og ég fæ ekki að vinna fyrir mér og fyrir börnunum mínum.“ Hann segist finna til með þeim sem finnst þetta gott á hann.
Þórir sagði að hann ætti ekki lengur rétt á atvinnuleysisbótum. „Ég þarf annað hvort að flýja þetta land eða gerast glæpamaður.“
Þátturinn hefur vakið upp hörð viðbrögð, þar á meðal frá aktívistanum Hildi Lillendahl sem segir á Twitter: “
„Nei sorrí en HVAÐ Í ANDSKOTANUM? Ha? Er þetta í alvöru framlag RÚV til #MeToo?“
Margir taka undir með henni og gera gys að því að Þórir sé eitthvað fórnarlamb og þurfi að gerast glæpamaður, hann hafi sent typpamyndir og einnig sent óviðeigandi skilaboð til samstarfskvenna áður en hann hafi farið í meðferð.
„Tjah fyrst fólk vill ekki hafa hann í kennslu eða ummönnun eða þjónustustörfum, þá bara neyðist hann til þess greyið.“