Hildur: Langar þig til Tenerife? „Þessir peningar tilheyra borgarbúum“

Það er ljóst að kosningabaráttan fyrir komandi sveitastjórnarkosningar er komin á fullt ef marka má auglýsingar og greinarskrif frambjóðenda.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, beinir spjótum sínum að núverandi meirihluta í aðsendri grein sem hún skrifar á vef Vísis.

Hún segir að flestir geti verið sammála um að grunnþjónustu í borginni sé ábótavant.

„Leikskólapláss eru af skornum skammti, ástand skólahúsnæðis ófullnægjandi, þrifum og snjómokstri ábótavant og borgarstjóra hefur meira að segja tekist að skerða þjónustustig Strætó.“

Þá bendir hún á að skuldir borgarinnar hafi vaxið mjög á kjörtímabilinu og að borgarsjóður sé ekki sjálfbær. Hann þurfi að reiða sig á arðgreiðslur frá Orkuveitunni til að endar nái saman.

„Orkuveitan er fyrirtæki að langstærstu leyti í eigu Reykjavíkurborgar sem byggir afkomu sína á þjónustugjöldum borgarbúa – skattheimtu. Samkvæmt arðgreiðsluáætlun Orkuveitunnar á Reykjavíkurborg að fá 25,4 milljarða í sinn hlut á árunum 2022-26, eða sem nemur um 440 þúsund krónum á hvert heimili í Reykjavík.“

Hildur lagðist í smá rannsóknarvinnu og komst að því að fyrir þennan pening, tæpar 440 þúsund krónur, megi fá vikuferð fyrir til Tenerife í sumar fyrir fjögurra manna fjölskyldu.

„Gist er á fjögurra stjörnu hóteli með líkamsrækt og SPA, og það er meira að segja golfvöllur innan seilingar. Nú langar kannski ekki alla til Tenerife, en mergurinn málsins er sá að þessir peningar tilheyra borgarbúum, og að því leyti sem Orkuveitan er aflögufær ætti auðvitað að skila þeim í vasa borgarbúa með lækkun þjónustugjalda.“

Grein Hildar í heild sinni.