Hildur lætur meiri­hlutann heyra það: „Ég er með hag­ræðingar­til­lögu. Sleppum þessu“

Fjár­hags­á­ætlun Reykja­víkur­borgar var kynnt í gær. Í henni kom fram að reiknað er með 6 milljarða króna halla á næsta ári og út­göngu­spár benda til þess að hallinn á þessu ári verði rúm­lega 15 milljarðar.

Í við­tali hjá Frétta­blaðinu segir Hildur það valda á­hyggjum.

„Þetta eru gríðar­lega háar fjár­hæðir og við höfum miklar á­hyggjur af stöðunni. Við sjáum 15,3 milljarða króna halla fyrir árið 2022 og mér finnst nauð­syn­legt að benda á að þetta er næstum því sex­faldur halli miðað við það sem á­ætlun gerði ráð fyrir, fyrir þetta ár,“ sagði Hildur.

„Við lýsum yfir gríðar­legum á­hyggjum af stöðunni. Við sjáum líka að skuldir halda á­fram að aukast, þær eru að aukast um 35 milljarða núna á milli ára og við höfum sjaldan séð aðra eins aukningu á milli ára.“

Í færslu sem Hildur birti á Face­book í morgun lætur hún meiri­hlutann í borginni heyra það.

„Einar Þor­steins­son sagði fram undan mestu hag­ræðingar­að­gerðir frá hruni. Í dag sendir meiri­hlutinn svo 64 blað­síðna bækling um hús­næðis­upp­byggingu í öll hús á höfuð­borgar­svæðinu. Ég er með hag­ræðingar­til­lögu. Sleppum þessu,“ sagði Hildur í færslunni.