Hildur kallar eftir styttri vinnu­viku – Lítið breyst frá 1926

Hildur Björns­dóttir, borgar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins, kallar eftir því að vinnu­vikan verði stytt og vinnu­tími sveigjan­legri. Hildur skrifar grein sem birtist í Frétta­blaðinuí dag þar sem hún fjallar um þetta og nefnir að vinnu­vikan hafi í raun lítið breyst frá árinu 1926.

„Árið 1926 fækkaði fram­sýnn kapítal­isti, Henry Ford, viku­legum vinnu­dögum í verk­smiðjum sínum úr sex í fimm. Þar með inn­leiddi hann fjöru­tíu stunda vinnu­viku sem var sá ná­kvæmi tíma­fjöldi sem Ford taldi nauð­syn­legan svo fram­leiða mætti bif­reiðar í sam­ræmi við eftir­spurn. Fjöru­tíu stunda vinnu­vikan var svo lög­leidd í Banda­ríkjunum árið 1940 en hér­lendis árið 1971,“ segir Hildur.

Síðan þá eru liðnir býsna margir ára­tugir en á þeim tíma hefur heimurinn tekið miklum breytingum, til dæmis með aukinni vél- og tölvu­væðingu. „En á­fram miðar vinnu­um­hverfi sam­tímans við fram­leiðslu­ferli Ford bif­reiða árið 1926,“ segir hún.

Hildur segir heil­brigt að velta því upp hvers vegna vinnu­dagur sam­tímans er enn átta stundir og hvers vegna net­væðing hafi ekki leitt til aukinnar fjar­vinnu.

„Hvers vegna vinnu má ekki stundum mæla í af­köstum fremur en klukku­stundum. Hvers vegna lands­menn hefji flestir sinn vinnu­dag um sama leyti. Á tímum sam­komu­banns dró veru­lega úr um­ferðar­töfum í Reykja­vík. Vinnu­staðir buðu sveigjan­legri vinnu­tíma og mögu­leikum til fjar­vinnu fjölgaði. Mörgum urðu ljós þau gífur­legu tæki­færi sem felast í auknum sveigjan­leika, ekki síst svo draga megi úr um­ferðar­álagi.“

Hildur vísar í tölur Sam­taka iðnaðarins sem á­ætluðu að 15% minni um­ferðar­tekjur gætu skilað fólki og fyrir­tækjum 80 milljarða króna á­bata á ör­fáum árum. Þá eru ó­talin þau auknu lífs­gæði sem felast í greiðum sam­göngum.

„Svo unnt verði að standast skuld­bindingar Parísar­sam­komu­lagsins þarf að minnka mengandi um­ferð um 5% ár­lega – það sam­svarar 6,7 km akstri á hvern íbúa viku­lega. Þessu mark­miði mætti hæg­lega ná með þeirri ein­földu að­gerð að tryggja starfs­fólki einn fjar­vinnu­dag viku­lega,“ segir Hildur sem telur á­vinninginn marg­vís­legan.

Segir hún að nú sé lag að hefja við­ræður við stærstu vinnu­staði borgarinnar um sveigjan­legri vinnu­tíma. Síðustu mánuðir hafi sýnt hve sveigjan­leikinn getur aukið lífs­gæði og létt á um­ferðar­álagi.

„Að­gerðin er ein­föld og kostar skatt­greið­endur ekkert. Nú er kominn tími til að endur­skoða þau kerfi sem við höfum skapað sam­fé­laginu – og kanna hvort þau séu raun­veru­lega að þjóna okkur. Nú er kominn tími til að stokka spilin.“