Hildur ís­lensku­kennari sendir á­kall: „Ég nenni þessu ekki lengur“

„Girðum okkur í brók og tökum á þessu. Ég nenni þessu ekki lengur,“ segir Hildur Ýr Ís­berg, ís­lensku­kennari við Mennta­skólann við Hamra­hlíð.

Hildur skrifaði býsna kraft­mikinn pistil á Face­book nú í morguns­árið þar sem hún velti fyrir sér skóla­kerfinu, stöðu drengja og van­líðan barna.

„Ég velti því fyrir mér hversu margar ráð­stefnur, greinar, þætti og ræður þarf að búa til um stöðu drengja í skóla­kerfinu áður en eitt­hvað raun­veru­legt gerist til þess að breyta þessari stöðu, þessu kerfi og þessari líðan,“ spyr Hildur í pistli sínum.

„Ég velti því LÍKA fyrir mér hvernig í ver­öldinni stendur á því að enginn hefur á­huga á stöðu annarra kynja í skóla­kerfinu? Niður­stöður rann­sókna benda til þess að stúlkum líði mun verr en drengjum og trans­börnum allra verst í þessu skóla­kerfi - drengir koma verr út úr læsi.“

Hildur spyr hvar ráð­stefnur, bækur, greinar og ræður um van­líðan þessara barna séu.

„Eru þau kannski ekki nógu merki­leg til þess að um þau sé fjallað? Eða höfum við kannski ekki raun­veru­legan á­huga á því að viður­kenna að kerfið virkar illa fyrir öll kyn og mjög mörg börn og því er mjög brýnt að bregðast við?“

Að mati Hildar þurfum við að hafa kjark til að taka þessa um­ræðu heild­stætt.

„Ég byrjaði að kenna fyrir tuttugu árum og á þeim tíma hef ég séð ótal rann­sóknir, ráð­stefnur og greinar um stöðu drengja. Ég hef aldrei séð hlið­stæð við­brögð við stöðu annarra kynja þó hana megi lesa mjög skýrt úr sömu gögnum. Girðum okkur í brók og tökum á þessu. Ég nenni þessu ekki lengur.“