Hildur hefur aldrei hlýtt Víði: „Ég er það sem kallast full­orðin“

„Ég hef aldrei hlýtt Víði eða lagt allt mitt traust á þrí­eykið í þessari bar­áttu gegn veirunni, hef bara hlustað á þetta góða og gagn­lega fólk og tekið mark á því en síðan notað mína eigin skyn­semi, af því að ég er það sem kallast full­orðin.“

Þetta segir Hildur Eir Bolla­dóttir, prestur í Akur­eyrar­kirkju, í færslu á Face­book-síðu sinni.

„Að sama skapi hef ég ekki hlýtt læknunum mínum í krabba­meins­með­ferðinni heldur hlustað á þá og tekið mark á þeim en síðan notað mína eigin skyn­semi, af því að ég telst víst full­orðin,“ segir Hildur og bætir við að við séum full­orðin þjóð, hlustum á upp­lýsingar og notum svo eigin skyn­semi hvert og eitt. Það sé auð­vitað krefjandi það heiti að vera full­orðinn.

„Á­fram Víðir, Þór­ólfur og Alma og á­fram full­orðin ís­lensk þjóð,“ segir Hildur.

Hildur er þekkt fyrir góð og gagn­leg skrif og í því sam­hengi má benda á heima­síðuna hennar, hildureir.is. Í nýjasta pistli sínum fjallar hún til dæmis um nokkur sál­ræn bjarg­ráð á tímum CO­VID-19.