Hildur greinst tvisvar með krabbamein á síðastliðnu ári

Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, hefur greinst tvisvar með krabbamein á umliðnu ári og kveðst óendanlega þakklát fyrir þann stuðning sem hún hefur fengið frá Krabbameinsfélagi Akureyrar.

Hildur birti pistil á Facebook-síðu Krabbameinsfélagsins en hún er eitt af 70 andlitum Krabbameinsfélagsins á afmælisárinu 2021. Ætlar félagið að birta 70 myndir eða myndskeið af fólki sem hefur komið við sögu í baráttunni gegn krabbameinum í 70 ára sögu félagsins.

Hildur er sveitastúlka sem alin er upp í Laufási og Hólum í Hjaltadal. Leið hennar lá í Verkmenntaskólann á Akureyri og þaðan í guðfræðina. Hildur hefur starfað sem prestur í Reykjavík en hefur undanfarin ár búið á Akureyri og starfað sem prestur í Akureyrarkirkju. Hún greindist með krabbamein í endaþarmi og er nú í meðferð vegna þess.

Í pistli sínum segir Hildur:

„Hvernig ertu á sálinni?“ Spyr Friðbjörn krabbameinslæknir mig gjarnan í framhaldi af öðru spjalli um lyfjameðferð og aukaverkanir. Mér hlýnar alltaf að innan þegar ég er spurð þessarar spurningar um leið og hún kemur beint við kvikuna og kallar fram viðkvæmni.“

Hildur segir að spurningin sé stór partur af því að ná aftur heilsu vegna þess að hún brýtur niður varnarmúra sem eru streituvaldandi.

„Innilegt samtal við aðila sem hefur raunverulegan áhuga á því að vita hvernig þú ert á sálinni þegar líkami þinn er undirlagður af efnavopnum og um leið svo framandi í stríðshamnum, getur verið jafn mikilvægt og lyfjameðferð.“

Hildur segir að Krabbameinsfélag Íslands og önnur krabbameinsfélög á landinu, til dæmis Ljósið, Kraftur og allar þær hreyfingar sem vinna að því að hlúa að sálarheill fólks á ögurstundu þegar lífsógnandi sjúkdómur hefur ruðst óboðinn inn séu ómetanlegar.

„Krabbameinsfélögin hafa á að skipa fólki sem kann og getur og vill hlusta, því áheyrn og hlustun er ekki bara það að þegja og horfa á viðmælandann heldur að heyra og skilja og sýna raunverulegan stuðning með samkennd og reynslu. Ég hef greinst tvisvar með krabbamein á umliðnu ári, farið í gegnum lyf, geisla, skurðaðgerð og aftur lyfjameðferð, ég hef notið stuðnings Krabbameinsfélags Akureyrar þar sem ég er búsett og fyrir það er ég óendanlega þakklát. Þar fékk ég speglun á líðan mína, kvíða og ótta. „Hvernig ertu á sálinni?“ Er spurningin sem öllu skiptir.“

Krabbameinsfélagið er rekið fyrir sjálfsaflafé með stuðningi frá íslenskum almenningi og fyrirtækjum. Hvetur félagið fólk til að fylgjast með á Instagram og Facebook undir myllumerkinu #70andlit.