Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn fyrir komandi kosningar, hefur fengið að finna fyrir því á samfélagsmiðlum eftir að greint var frá mætingu hennar á fundi borgarstjórnar í gær.
Hún hefur ekki mætt á borgarstjórnarfundi í á þriðja mánuð og rekur hún ástæðuna til kosningabaráttunnar sem nú stendur yfir. Hún mætti síðast á fund 15. febrúar en mætti ekki á fundi sem haldnir voru 1. og 15. mars og svo þann 5. apríl. Þá var hún ekki á aukafundi sem haldinn var þann 26. apríl síðastliðinn. Vísir greindi frá þessu í gær.
Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar, sagði til dæmis á Twitter:
„Spurning hvort Hildur haldi að hún sé meira í kosningabaráttu en við hin. Það virðist ekkert vera að vefjast fyrir öðrum fulltrúum að mæta á svona flesta fundina sína, bæði í meirihluta og minnihluta.“
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, oddviti Pírata í Kópavogi, vísaði í sveitarstjórnarlög um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna í færslu sinni á Facebook. Í þeim er kveðið á um að sveitarstjórnarmanni beri skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.
„Annir við að kynna framboðið sitt fyrir kosningar teljast tæplega til lögmætra forfalla, en í 31. gr laganna er talað um heilbrigðisástæður eða aðrar óviðráðanlegar ástæður,“ sagði hún.
Hildur er með rúmleag 1,4 milljónir króna í laun á mánuði. Grunnlaun eru 892 þúsund krónur og svo fær hún 223 þúsund krónur fyrir setu í borgarráði, 223 þúsund fyrir setu í þremur nefndum og svo starfskostnað upp á 64 þúsund krónur, að því er fram kom í frétt Vísis í gær.
Hildur vísar í einhverja hefð. Er þá rétt að álykta sem svo að Sjálfstæðismenn í borginni hafi löngum hætt fyrr í vinnunni en allir aðrir flokkar til þess að sinna prófkjöri og kosningabaràttu?
— Þórhildur Sunna (@sunnago) May 4, 2022
Hildur fær 1,3 milljónir í mánaðarlaun + 64 þús í starfskostnað fyrir að sitja í borgarstjórn 👌 pic.twitter.com/GuvsTj3yWm
— óskar steinn (@oskasteinn) May 3, 2022
Það er ánægjulegt að Hildur vill ræða borgarmálefni… Miðað við fréttir má líka byrja á því að mæta í vinnuna! https://t.co/BknoHR8Q6I
— Gunnar Alexander (@Gunnarolol) May 3, 2022
Held að ég sé í röngum bransa. Fær maður 1.4 milljónir á mánuði fyrir að mæta ekki í vinnuna hjá @reykjavik urborg í 3 mánuði?
— Hilmar Nordfjord (@hilmartor) May 3, 2022
Hvar sæki ég um? 🥳