„Þarna birtist okkur leiðindapólitík þar sem útilokað er samstarf við flokka og það eru mynduð bandalög til að einangra aðra,“ sagði Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Þar ræddi Hildur meðal annars nýjan meirihluta Framsóknarflokks, Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata sem kynntur var í gær. Þá gagnrýndi Hildur hegðun sumra flokka eftir kosningarnar en Sjálfstæðisflokkurinn var að hluta til útilokaður hjá öðrum flokkum strax eftir kosningar.
„Við höfum þá vinnureglu í Sjálfstæðisflokknum að geta starfað með öllum. Við höfum þá vinnureglu að styðja öll góð mál, vinnum með meirihluta að góðum málum en gerum ágreining um mál sem við erum ósammála. Þarna birtist okkur leiðindapólitík þar sem útilokað er samstarf við flokka og það eru mynduð bandalög til að einangra aðra,“ sagði Hildur og nefndi einnig að sumir hefðu ekki einu sinni tekið símann.
„Þetta var svolítið hegðun sem við kennum börnunum okkar að sé ekki æskileg. Hún var einhvern veginn ástunduð þarna.“
Hildur sagði í Bítinu að lítið innihald væri í sáttmála nýja meirihlutans en umbúðirnar þeim mun meiri.
„Orðafjöldinn er nánast sá sami og í sáttmálanum 2018 en blaðsíðufjöldinn hefur tvöfaldast.“
Hildur sagðist þar að auki ekki sjá mörg af stefnumálum Framsóknarflokksins í sáttmálanum. Kafli um húsnæðismál væri til dæmis byggður á áformum gamla meirihlutans. „Mér finnst kannski einu fingraför Framsóknar í þessum sáttmála vera frítt í stund og strætó fyrir börn. Mér sýnist það vera það eina sem Framsókn hefur náð í gegn.“