Hildur Eir steinhætt allri megrun: „Héðan í frá ætla ég að borða allt sem mig langar“

Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, segist hafa tekið þá gleðiríku ákvörðun að fara aldrei aftur í megrun. Hildur lýsir þessu yfir í skemmtilegum pistli á Facebook-síðu sinni.

„Þó svo að ég hafi aldrei glímt beint við offitu um ævina hef ég vissulega á tímabilum verið nokkuð þétt og yfir kjörþyngdarmörkum og þó það hafi nú kannski ekki verið mín mesta þjáning í lífinu að glíma við aukakíló þá hefur það tekið ótrúlega mikla orku og lífsgleði frá mér, svona þegar ég staldra við og hugsa um það.“

Hildur hefur undanfarin misseri háð hetjulega baráttu við krabbamein og segir hún að í því ferli hafi hún tekið ákvörðun að fara aldrei aftur í megrun. „…Og aldrei aftur á sérstakt mataræði og aldrei aftur í 16/8 föstu og aldrei aftur á duft og aldrei aftur á lágkolvetnamataræði.“

Hildur endar pistilinn á þessum orðum:

„Héðan í frá ætla ég að borða allt sem mig langar til að borða en hreyfa mig mikið eins og ég er vön og kannski bara hugsa einn dag í einu af skynsemi um hvort ég sé ekki örugglega að nærast nóg og hlusta eftir hvernig mér líður í líkamanum mínum en ekki fylgjast með hvað aðrir eru að gera til þess að verða eða vera grannir. Og ef ég grennist ekki við þetta og verð bara áfram þétt, þá gæti það samt bara verið í lagi, það er alveg möguleiki.“