Hildur Eir segir mikilvægt að leyfa börnunum að sjá sig gráta

„Í uppeldi barna held ég að tvennt sé hvað mikilvægast að foreldrar geri, annars vegar að viðurkenna mistök sín gagnvart þeim og að leyfa börnunum að sjá sig gráta,“ sagði séra Hildur Eir Bolladóttir í hátíðarmessu í Akureyrarkirkju í morgun.

Ræða Hildar er birt í heild sinni á vefnum Akureyri.net og er óhætt að segja að í henni hitti hún naglann á höfuðið eins og svo oft áður.

Mér eru afar minnisstæð þau skipti í minni bernsku sem ég sá foreldra mína gráta, þau skipti hefðu eflaust mátt vera fleiri. Ég man eftir að fyllast í senn lotningu, feimni, forvitni og undrun við þá upplifun. Ég hef líka skynjað mín eigin börn nálgast mig með áþekkum hætti þegar ég hef grátið í návist þeirra, líkt og ég verði þeim örlítið framandi,“ sagði Hildur í byrjun ræðu sinni og nefndi að mikilvægt væri fyrir foreldra að viðurkenna mistök sín gagnvart þeim og leyfa þeim að sjá sig gráta.

„Í rauninni held ég að þetta tvennt sem sjálfsagður hluti uppeldis hvers barns styrki hvað mest tilfinningagreind þess og hæfileikann til að eiga heilbrigð og ómeðvirk tengsl við annað fólk,“ sagði hún.

Predikun Hildar má lesa í heild sinni hér.