Hildur Eir ákveðin: „NEI, nei, nei, við erum ekki að fara þangað“

„NEI, nei, nei, við erum ekki að fara þangað, þá er skárra að leyfa bara veirunni að hafa sinn gang án mót­spyrnu,“ segir Hildur Eir Bolla­dóttir, prestur í Akur­eyrar­kirkju, í pistli á Face­book-síðu sinni.

Hildur Eir vísaði þar í spurningu til Páls Matthías­sonar, for­stjóra Land­spítalans, í gær þess efnis hvort gerði yrði lög­reglu­rann­sókn á hóp­smitinu á Landa­kotinu sem hefur dregið sjúk­linga þar til dauða undan­farna daga.

„Pabbi lést á Landa­koti fyrir tólf árum þá rétt rúm­lega sjö­tugur að aldri úr Levy-sjúk­dómnum, eða nei, senni­lega dó hann úr lungna­bólgu. Ég man það ekki, man bara að í rúminu við hlið hans var maður með Nóró­veiru og ég var ó­frísk og bað um að þeir yrðu færðir í sitt­hvort her­bergið af því að mig langaði að kveðja pabba án þess að eiga á hættu að fá Nóró­veiru og æla barninu út,“ segir Hildur í færslunni.

Hún segir að úr þessu hafi verið leyst og þau átt góða síðustu daga við sjúkra­beð pabba.

„Þetta heitir lífið, það er fullt af sárum vörðum, pabbi var með al­var­legan undir­liggjandi sjúk­dóm en dó síðan úr lungna­bólgu eða ein­hverri pest, það var engum að kenna. Starfs­fólk Landa­kots um­vafði hann kær­leika og um­hyggju, það er hug­sjón þeirra sem velja þennan illa launaða starfs­vett­vang, fólk ræður sig ekki á Landa­kot til að græða peninga, svo mikið er víst. En við förum ekki að sækja fólk til saka vegna smita Co­vid 19, ef það verður raunin þá er ljóst að af­leiðingar smit­varna eru orðnar skað­legri en veiran.“