Hildur birtir athugasemdirnar: „Konur munu hata þig“

„Þetta er aðeins brot af þeim athugasemdum sem mér hafa borist,“ segir Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í athyglisverðri færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.

Færsluna birti hún í tilefni þess að í gær, 8. mars, var alþjóðlegur baráttudagur kvenna haldinn hátíðlegur. Birti Hildur allskonar athugasemdir sem hún hefur fengið en hún hefur verið borgarfulltrúi frá árinu 2018.

„Ekki vera svona kvenleg. Finndu þér karllægri áhugamál. Fólk tengir ekki við áhugamál kvenna. Ekki vera með varalit. Klæddu þig ekki svo kvenlega. Ekki segja frá þeim árangri sem þú hefur náð. Það er hrokafullt af konu. Ekki taka svo mikið pláss. Konur munu hata þig.

Þetta er aðeins brot af þeim athugasemdum sem mér hafa borist.“

Hildur er með eftirfarandi ráðgjöf til kvenna í stjórnmálum.

„Konum er sagt að beita sér en láta ekki á því bera að þær séu kvenkyns. Til allrar hamingju hefur ráðgjöf af þessum toga þveröfug áhrif á mig. Við þurfum ekki tiltekið útlit, ákveðinn fatnað eða sérstök áhugamál í stjórnmálin - við þurfum fólk með skýrt erindi og brennandi áhuga. Mér var sagt að birta ljótari myndir. Ég lét taka fallegri myndir,“ segir Hildur sem birtir fallega mynd af sér með færslunni.

Færsla Hildar hefur sem fyrr segir vakið mikla athygli og hafa margir skrifað athugasemdir við færsluna. „Algjörlega geggjuð,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og þá segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra:

„Konur eru alltaf annað hvort of eða van og ó, hvað við fáum margar leiðbeiningar um það hvað við eigum að segja og hvað ekki, hvernig við eigum að tala og hvernig ekki. Tökum plássið áfram því þannig breytum við. Áfram þú! Áfram stelpur!“