Meirihluti borgarstjórnar felldi tillögu Sjálfstæðisflokksins um endurskoða samgöngusáttamála höfuðborgarsvæðisins í gærk. Kostnaðaráætlun samgöngusáttmálans hefur hækkað um 50 milljarða og enn óvissa með fjármögnun.
Marta Guðjónsdóttir og Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins töluðu fyrir tillögunni og sagði Hildur meðal annars að að á tæpum fjórum árum frá undirritun sáttmálans er engri þeirra framkvæmda sem aðilar gerðust ásáttir um að flýta, nú lokið.
Framkvæmda- og fjársteymisáætlun hefði ekki staðist og t.d. farið langt umfram verðbættar áætlanir hvað varðar Sæbrautarstokk og Arnarnesveg. Þá væri óvissa með fjármögnun.
Í miðri ræðu sinni ákvað hún hins vegar að minnast ljósmyndar úr smiðju DV.is sem var birt af sér Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.
Hildur sagði myndina eina af sínum uppáhalds samsettu myndum frá DV. „Mér finnst hún svolítið lýsandi því það skiptir máli að ráðast í samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu en það er ekki sama hvað það kostar,“ sagði Hildur.
„Einu sinni setti DV saman myn af mér og borgarstjóra þar sem við vorum með lambhúshettur,“ bætti Hildur við. „Kannski mun ég finna tilefni til að birta hana,“ sagði Hildur en Dagur virðist hafa kallað eitthvað að henni sem heyrðist ekki í salnum. Hildur hlær þá og segir „Ég skal senda þér hana í pósti, kæri borgarstjóri.“