Hildur Árna hjá Jóni G.: Hlutfall kvenna í stjórnum hækkað með hraða snigilsins

Hildur Árnadóttir, formaður Íslandsstofu og Jafnrvægisvogar FKA, - sem og varaformaður stjórnar Sjóvár – er gestur Jóns G. í kvöld. Þau ræða nýlega ráðstefnu Jafnvægisvogar FKA sem fram fór á netinu. Jón spyr Hildi að spurningunni vinsælu sem jafnan fæst ekki afgerandi svar við, þ.e. hvers vegna eru ekki fleiri konur stjórnendur stórfyrirtækja á Íslandi? Hildur svarar því og segir meðal annars. „Ekki er það menntunin.“

Þá ræða þau hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja sem eru með yfir 50 starfsmenn – en árið 2010 voru sett lög um kynjakvóta sem sagði að hlutfall hvors kyns í stjórnum fyrirtækjanna með yfir 50 starfsmenn ætti að vera að lágmarki 40%.. Lögin tóku gildi haustið 2013 og nýlega birti Hagstofan nýjustu tölur um þetta hlutfall og reyndist það vera 34,7% og 26,5% í öllum fyrirtækjum landsins; óháð stærð.

„Þetta hlutfall tók kipp fljótlega eftir að lögin öðluðust gildi en síðan hefur það hækkað á hraða snigilsins,“ segir Hildur í mjög áhugaverðu viðtali við Jón G.

Þátturinn Viðskipti með Jóni G. er á dagskrá Hringbrautar kl. 20:30 öll miðvikudagskvöld.