Hertar sóttvarnaraðgerðir: Þessar breytingar taka gildi á miðvikudag

Svandís Savarsdóttir kynnti breytingar á samkomutakmörkunum hér innanlands skömmu eftir ríkisstjórnarfund í morgun.

Þar ber helst að nefna að samkomutakmarkanir verða hertar úr 2000 manns og niður í 500 manns. Opnunartími skemmtistaða verður styttur um tvo tíma og ber eigendum að loka þeim klukkan ellefu.

Þá verður grímuskylda aftur tekin upp í verslunum og á sitjandi viðburðum. Grímuskylda verður tekin upp strax á morgun en samkomutakmarkanirnar ekki fyrr en næstkomandi miðvikudag.

Þrátt fyrir 500 manna samkomutakmarkanir geta þó 1500 manns komið saman með þeim skilyrðum að allir gestir hafi farið í hraðpróf og skili neikvæðri niðurstöðu ásamt því að bera grímur.

Svandís sagði eftir ríkisstjórnarfund að Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir hafi lagt til þrjár mismunandi leiðir. Þær hafi verið að halda óbreyttu ástandi – fara í mjög harðar aðgerðir – fara milliveginn.

Svandís sagðist hafa ákveðið að velja þriðju leiðina.

Hún bætti við að fyrr en varir verði hafið að bólusetja fólk með þriðja skammtinum af bóluefni, eða svokölluðum örvunarskammti.