Hertar aðgerðir taka gildi: 10 manna samkomubann og skólar loka

„Nú eru blikur á lofti sem þarf að bregðast við,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar sem fram fór í Hörpu í dag. Þar voru kynntar hertar aðgerðir í ljósi fjölgunar kórónuveirusmita í samfélaginu, en eins og greint var frá í morgun greindust sautján manns með COVID-19 í gær. Ekki hafa fleiri greinst á einum degi síðan í nóvember og sagði Katrín nauðsynlegt að grípa yrði mjög fast inn í. Reglurnar taka gildi strax á miðnætti.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði að meðal þeirra aðgerða sem gripið verður til er tíu manna samkomubann og verða undanskilin börn fædd 2015 og síðar. Grunnskólar, framhaldsskólar og háskólar loka þar til eftir páskafrí. Aðgerðirnar sem taka gildi á miðnætti munu gilda í þrjár vikur.

Svandís sagði að sund- og baðstaðir munu þurfa að loka sem og líkamsræktarsalir. Almennt samkomubann verður miðað við tíu einstaklinga. Þá loka kvikmyndahús og skemmtistaðir og þá verður ökunám- og flugnám óheimilt. Trú- og lífsskoðunarfélög mega taka á móti 30 gestum. Veitingastaðir mega hafa opið til klukkan 22 á kvöldin en með tuttugu gesta hámarksfjölda sem þurfa þar að auki að vera skráðir í sæti.