Herra hnetusmjör ósáttur: „Við erum greinilega ekki í þessu saman“

Tónlistarmaðurinn vinsæli, Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra hnetusmjör, er ósáttur við sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda. Hann lét til sín taka á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi, en tilefnið er væntanlega hertar aðgerðir yfirvalda sem kynntar voru í gær og tóku gildi á miðnætti.

Herra hnetusmjör, sem þykir einstaklega vinsæll meðal yngri tónlistarunnenda, segir í færslu sinni:

„Hversu oft þurfa íslenskir ríkisborgarar að loka sig af á meðan túristar þykjast fara í sóttkví? Hversu mörg afbrigði innum landamærin til að við gefum skít í ríkisstjórnina?“

Eins og flestum er kunnugt hefur veirufaraldurinn haft mikil áhrif á þá fjölmörgu frábæru tónlistarmenn sem við Íslendingar eigum. Hefur faraldurinn gert það að verkum að nær allt tónleikahald hefur legið niðri síðastliðið ár og því miður virðist ekki vera útlit fyrir að það breytist á næstu vikum.

Posted by Herra Hnetusmjör on Miðvikudagur, 24. mars 2021