Hildur Hermóðsdóttir hefur fengist við margt í gegnum tíðina, m.a. bókaútgáfu en hún er dóttir Hermóðs Guðmundssonar í Árnesi sem var foringi bænda í Aðaldal sem barðist í mörg ár gegn byggingu virkjunar í Laxárdal. Yfirvöld hlustuðu ekki á nein rök bænda fyrir norðan og létu hefja undirbúning að byggingu stíflu sem var staðsett skammt frá Mývatni á leið niður í Laxá. Stíflan átti að verða 57 metra há og hefði orsakað það að Laxárdalur hefði horfið undir vatn. Bændur fengu nóg af þessum áformum sem frægt er og tóku sjálfir í taumana og fjölmenntu seint að kvöldi vopnaðir dínamíti og stóðu að því að sprengja svokallað Miðkvíslarstíflu við Laxá. Atburðurinn átti sér stað þann 25. Ágúst 1970 en Hermóður var heima í Árnesi þar sem hann var formaður Landeigendafélags Laxár og Mývatns og talið hentugt að hann hefði góða fjarvistarsönnun. Eftirmálar urðu m.a. þeir að haldin voru réttarhöld í Skjólbrekku í Mývatnssveit þar sem allir viðstaddir voru kvaddir fyrir settan héraðsdómara og yfirheyrðir. Að sögn Hildar sem þá var um tvítugt skorti alla viðstadda nægjanlegt minni til að geta sagt nákvæmlega frá atburðarásinni. Gaman er að hlusta á frásögn Hildar af þeirri sátt sem gerð varð af þessu máli sem vakti heimsathygli á þeim tíma.
Hlaðvarpið Lífið er lag er hægt að nálgast á Spotify sem og flestum öðrum streymisveitum og einnig á heimasíðunni ferdaskrifstofaeldriborgara.is