Her­mann segir Borgar­línu úr­elta lausn: „Lausn 20. aldarinnar en alls ekki þeirrar 21“

Her­mann Guð­munds­son, for­stjóri Kemi og fyrr­verandi for­stjóri N1, segist telja að hug­myndir um Borgar­línu séu lausn 20. aldarinnar en alls ekki 21. aldarinnar.

Her­mann gerir þetta að um­tals­efni á Face­book-síðu sinni og bendir á að í Banda­ríkjunum séu að spretta upp stór fyrir­tæki sem koma með nýjar lausnir á gömul vanda­mál.

„Eitt af þessum fyrir­tækjum heitir Beep og það gerir út mann­lausar skutlur fyrir 10-12 manns. Þessar skutlur ganga eftir fyrir fram á­kveðnum leiðum og eru raf­drifnar. Ég hef þegar séð þær að störfum í Or­lando og það eru nokkur fylki þegar búin að taka upp þessa þjónustu í af­mörkuðum hverfum,“ segir hann.

Her­mann bætir við að þróunin sé hröð í lausnum sem nýta þær sam­göngu­leiðir sem þegar eru til, kosta ekki mikið, greiða sig sjálfar, menga lítið og eru auk þess sveigjan­legir val­kostir.

„Sem dæmi væri hægt að ferja stóra hópa af fólki frá tón­leikum eða í­þrótta­leikjum að bíla­stæðum sem lægju lengra frá,“ segir Her­mann sem hefur trú á að svona lausnir henti vel í okkar litla borgar­landi vegna þess sveigjan­leika sem svona farar­tæki bjóða upp á.

„Sem dæmi gætu verið for­ritaðar leiðir úr Borgar­túninu og nær­liggjandi götum og upp í Laugar í há­deginu. Þannig dregið úr um­ferð og öng­þveiti. Alla vega tel ég hug­myndir að Borgar­línu vera lausn 20. aldarinnar en alls ekki þeirrar 21.“