Herdís Storgaard, verkefnastjóri hjá Miðstöð slysavarna barna, birtir mikilvæga áminningu til foreldra nú þegar öskudagurinn er fram undan.
Herdís heldur úti Facebook-síðunni Árvekni þar sem hún birtir reglulega áhugaverða mola um slysavarnir barna. Í dag fjallar hún um poppkorn sem getur verið sérstaklega varasamt fyrir yngri börn.
„Nú er öskudagur að renna upp og er þá vani að gera börnunum glaðan dag. Margir vilja draga úr sykurneyslu og velja því að gefa börnunum poppkorn. Poppkorn er mjög varasamt fyrir börn yngri en 4 ára,“ segir Herdís í færslu sinni og bætir við að poppkorn sé á lista yfir 15 hættulegar fæðutegundir eða sælgæti sem geta orsakað köfnun hjá yngri börnum.
„Poppkorn eða hluti þess getur farið niður í lungu og sest þar að. Það líða oft mánuðir þangað til að veikindi koma upp og oft er erfitt að greina að eitthvað hafi farið niður í lungu. Poppkorn inniheldur salt og olíu en bæði þessi efni eru skaðleg lungunum.“
Í færslunni segir enn fremur að poppkorn geti staðið illa í litlum börnum þar sem þau tyggja ekki matinn vel sökum þess að þau hafa ekki fengið alla jaxla.
„Poppkorn þurrkar líka munninn og þegar munnur verður þurr þá aukast líkur á því að það standi í barninu.“
Ágætu vinir Árvekni Poppkorn hættuleg fyrir yngri börn Nú er öskudagur að renna upp og er þá vani að gera börnunum...
Posted by Árvekni - Slysavarnir barna on Mánudagur, 15. febrúar 2021