„Ég hef í fjölda ára bent á þessa hættu en án árangurs,“ segir Herdís Storgaard, verkefnastjóri hjá Miðstöð slysavarna barna, í færslu á Facebook-síðunni Árvekni.
Þar greinir Herdís frá því að móðir hefði sett sig í samband við hana og lýst áhyggjum sínum yfir því að sjá barnavagna með teppum eða bleium fyrir opinu.
„Ég hef farið í gegnum leiðbeiningar frá heilbrigðisyfirvöldum í nokkrum löndum í Evrópu og það er sérstaklega varað við því að setja eitthvað fyrir opin nema flugnanet.“
Herdís segist hafa bent á þetta lengi, eða síðan verkfræðingur og faðir ungs barns mældi súrefnisflæðið inni í vagninum. Setti hann sig í samband við Herdísi og benti á að það væri ekki beinlínis holt loft inni í vögnum sem búið er að byrgja opið á.
„Það er ekki bara það súrefnisflæðið sé hindrað heldur hefur það sýnt sig að hitastigið inni í vagninum stígur líka um nokkrar gráður þannig að of mikill hiti getur skapast inni í vagninum en þetta er eitthvað sem flestir átta sig ekki á. Það er því enn og aftur að ég minni ykkur á það kæru foreldrar að þetta er ekki holt fyrir börnin.“
Ágætu vinir Árvekni Það hafði samband við mig móðir sem er eins og fleiri áhyggjufull yfir því að sjá barnavagna með...
Posted by Árvekni - Slysavarnir barna on Föstudagur, 12. febrúar 2021