Herdís Storgaard, verkefnastjóri hjá Miðstöð slysavarna barna, er dugleg að minna foreldra á ýmis atriði þegar kemur að slysum hjá börnum og hvernig koma megi í veg fyrir þau.
Hún birti til dæmis forvitnilega færslu á dögunum um hættur poppkorns og hefur af því tilefni tekið saman fleiri fæðutegundir sem geta verið varasamar börnum vegna köfnunarhættu. Hér má sjá listann sem Herdís birti á Facebook-síðunni Árvekni.
- Saltstangir
- Pylsur
- Hnetur og fræ – og matvæli sem innihalda þetta líka
- Heil vínber
- Hart sælgæti – brjóstsykur – karamellur
- Klessukennt sælgæti – hlaup
- Poppkorn
- Hnetusmjör – hættulegast ef það er borðað eitt og sér
- Rúsínur
- Tyggjó
- Sykurpúðar
- Seigt kjöt
- Ostur í bitum
- Morgunkorn sem baða á í mjólk en er stundum gefið börnum til að narta – þessi fæðutegund þurrkar munninn mikið og þá verður erfitt fyrir barnið að kyngja og þá skapast hætta á að það standi í barninu.
Þá minnir Herdís á að mikilvægt sé að yngstu börnin séu ekki á ferðinni þegar þau borða. Gott ráð þegar börn eru að fá sér næringu er að börn sitji kyrr. Þá getur verið varasamt að gefa börnum eitthvað að narta í í bílnum þar sem oft heyrist ekki í barninu fyrr en ástandið er orðið alvarlegt og barnið hætt komið vegna hávaða í umferðinni.
„Gefa sér góðan tíma á matmálstímum, börn tyggja matinn illa fyrstu árin þar sem þau eru ekki með fullkomið tannsett. Mikilvægt er að fylgjast alltaf með litum börnum þegar þau borða.“