Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir, sem útskrifaðist með fyrstu einkunn á BA- prófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík sendir grunnskóla kennaranum sínum væna pillu í gær sem sagði að það yrði ekkert úr henni.
„Til starfsmanns í grunnskóla sem ég var í sem barn, sem sagði að ég væri of vitlaus og löt til að geta lært eitthvað mikilvægt; Í dag útskrifaðist ég með fyrstu einkunn í BA í lögfræði í HR. Mig vantaði bara aðstoð vegna lesblindu og ADHD, ég var ekki löt né vitlaus,“ skrifar Herdís en DV greinir frá.
„Ég átti alltaf ótrúlega erfitt með nám, sérstaklega lestur. Ég er rosalega lesblind. Ég var aldrei með einhverjar góðar einkunnir og fékk alveg að finna fyrir því hjá kennurum,“ segir Herdís og bætir við að hún fékk hvorki lesblindu- né ADHD-greiningu í gegnum skólann,“ segir Herdís í samtali við DV en hún er 29 ára einstæð tveggja barna móðir og hefur sinnt náminu samhliða uppeldi barnanna.
„Foreldrar mínir fóru með mig í greiningu eftir að frændi minn benti mömmu á að ég væri lesblind en hann er sjálfur lesblindur. Svo átti ég að fá ADHD-greiningu en grunnskólinn minn skilaði aldrei sínum pappírum þannig ég fékk aldrei fullgilda greiningu,“ segir hún.
Hún segir að hún hafi ekki fallið undir þessa „klassísku“ birtingarmynd ADHD. „Ég var ekki mjög ofvirk, ég var meira inni í mér og meira svona dreymin. Það er oft talað um þetta sem „týpíska stelpu“ ADHD,“ segir hún.
Eitt af því sem Herdís gerði til að ná að einbeita sér í tímum og hlusta á kennarann var að krota á blað, en fékk skammir og var látin hætta því.
„Það var þá sem ég náði að hlusta best, en ég mátti ekki gera það,“ segir hún.
Hægt er að lesa viðtal DV við Herdísi hér.
Til starfsmanns í grunnskóla sem ég var í sem barn, sem sagði að ég væri of vitlaus og löt til að geta lært eitthvað mikilvægt; Í dag útskrifaðist ég með fyrstu einkunn í BA í lögfræði í HR. 🥂 Mig vantaði bara aðstoð vegna lesblindu og ADHD, ég var ekki löt né vitlaus 😉 pic.twitter.com/ScrtxBFPcL
— Herdís Ósk (@HerdisOsk92) June 19, 2022