Her­dís og Ás­dís voru að horfa á sjón­varpið þegar maðurinn birtist skyndi­lega inni hjá þeim

Ó­hætt er að segja að mæðgunum Her­dísi Sigur­jóns­dóttur og Ás­dísi Magneu Fjeld­sted hafi brugðið í fyrri­nótt þegar þær voru að horfa á sjón­varpið heima hjá sér. Trölli fjallaði um málið á vef sínum og fékk Hring­braut leyfi til að birta með­fylgjandi mynd.

Inn­brots­þjófur hefur gert í­búum á Siglu­firði lífið leitt að undan­förnu og hefur lög­regla hvatt íbúa til að læsa húsum sínum.

Mæðgurnar voru að horfa á tón­listar­þátt með hljóðið­hátt stillt þegar Ás­dís varð vör við það að hanska­klædd hönd hafði fært glugga­tjöldin til. Skyndi­lega blasti við dökk­klæddur maður sem lét sig hverfa á met­hraða út í myrkrið þegar Ás­dís öskraði: „VODDA­FOKK“. Svo virðist sem maðurinn hafi opnað gluggann upp á gátt til að skríða inn, en glugginn var opinn til að lofta út.

Í sam­tali við Trölla hvatti Her­dís íbúa til að vera á varð­bergi því enginn vill fá svona ó­boðna gesti í heim­sókn. Um var að ræða aðra nóttina í röð þar sem inn­brots­þjófur leitar uppi opin hús á Siglu­firði.

Nánar má lesa um málið á vef Trölla.