Herdís Steingrímsdóttir sameindalíffræðingur er látin, 67 ára að aldri, en hún lést á Royal Sussex County-sjúkrahúsinu í Brighton á Englandi þann 24. janúar síðastliðinn.
Herdís bjó fyrstu æviár sín í Mosfellssveit en fluttist til Reykjavíkur árið 1960. Hún lauk stúdentsprófi frá MR árið 1973, lauk BS-prófi í matvælafræði frá Háskólanum í Leeds árið 1978 og hóf störf á rannsóknarstofu við sameindalíffræðideild Háskólans í Sussex árið 1984.
Í minningargrein um Herdísi sem birt er í Morgunblaðinu í dag kemur fram að áhugi hennar á faginu hafi verið mikill og fyrr en varði hóf hún nám í fræðunum samhliða vinnu. Lauk hún doktorsprófi í sameindalíffræði árið 1990.
Herdís kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum, Dave Gillard endurskoðanda, á háskólaárunum í Leeds og gengu þau í hjónaband árið 1983.
Eftir doktorsprófið árið 1990 starfaði hún við rannsóknir við háskólann í Sussex og við King’s College í London. Árið 1998 stofnaði hún ásamt Dave líftæknifyrirtækið Microzone, þar sem hún hóf þróun á prófefnablöndum fyrir sameindalíffræðilegar rannsóknir.
„Þannig tók hún þátt í þróun á bóluefnum við ýmsum illvígum smitsjúkdómum, s.s. berklum. Hún lætur eftir sig mikið rannsókna- og þróunarstarf. Í árslok 2018 seldu þau fyrirtækið, en Herdís vann sem ráðgjafi nýju eigendanna. Síðastliðið vor leituðu þeir til hennar um þróun á prófefnablöndu fyrir skimun á Covid-19. Fljótlega varð til nýtt skimunarpróf sem var tekið í notkun í september að loknum klínískum athugunum. Herdís var kona sem hafði ætíð ráð undir rifi hverju; hún dó ekki ráðalaus,“ eins og segir í Morgunblaðinu í dag.
Útför Herdísar verður frá Downs Crematorium Main Chapel í Brighton í dag klukkan 14 og verður henni streymt til ættingja og vina.