„Sem þátttakanda í íslenskri knattspyrnu í yfir 60 ár, sem leikmaður, þjálfari, stjórnarmaður og stuðningsmaður er mér misboðið,“ segir Hörður Hilmarsson, fyrrverandi íþróttamaður, í kraftmiklum pistli á Facebook-síðu sinni í gær.
Hörður lék lengi vel handbolta og fótbolta og þjálfaði í báðum íþróttagreinum. Þá lék hann 14 landsleiki fyrir Ísland á sínum tíma og lék í Svíþjóð sem atvinnumaður.
Í pistlinum, sem fréttavefur Eiríks Jónssonar fjallaði fyrst um, segir hann að honum hafi boðist miðar á landsleik Íslands og Armeníu á föstudagskvöld. Hann afþakkaði boðið, meðal annars í ljósi þess að hann var á leið í sjötugsafmæli á sama tíma. Hann segist þó hvort sem er ekki hafa farið á landsleikinn og tíundar hann ástæður þess í pistlinum.
„Hvers vegna ekki? Ástæðurnar eru nokkrar og ekki öllum þóknanlegar. Who cares? Ég hef eins og aðrir karlkyns knattspyrnumenn þurft að sitja undir kommentum misviturra sérfræðinga á samfélagsmiðlum um neikvæða "klefamenningu" sem á víst að hafa átt sér stað í samfélagi karla í knattspyrnu. Ég sem leikmaður og þjálfari í áratugi kannast ekki við kvenfyrirlitningu eða annan negatívisma í búningsklefum karlmanna,“ segir Hörður og bætir við að konur séu fjarri því betri hvað þetta varðar.
„Hins vegar upplifði ég það sem þjálfari kvennaliðs að yndislegar stúlkur voru miklu meiri klámkjaftar heldur en ég hafði kynnst í "strákaklefum". Ég tók þessu sem þeirra húmor og hafði engar áhyggjur af, þótt ég roðnaði stundum. En mér er misboðið þegar okkur karlkyns fótboltamönnum er borið á brýn orðfar eða annað sem stuðlað getur að ofbeldi eða ofbeldismenningu. Sem bróðir 6 systra og faðir 3ja yndislegra dætra þá myndi aldrei hvarfla að mér að styðja eða verja e-ð sem flokkast gæti sem niðurlæging eða ofbeldi í garð stúlkna eða kvenna.“
Hörður segist ekki heldur geta stutt orð og aðgerðir „misviturra aðila“ sem farið hafa offari og stuðlað að því að „heiðarlegur og vandaður“ maður eins og Guðni Bergsson hafi verið hrakinn úr starfi sem formaður KSÍ fyrir litlar sakir eins og hann orðar það. Segir Hörður að Guðni hafi verið besti formaður KSÍ í áratugi.
„Guðni sinnti "litlu" félögunum á landsbyggðinni mun betur heldur en forverar hans í embætti höfðu gert og hann var einnig frábær fulltrúi Íslands út á við, t.d. gagnvart UEFA og FIFA. Þegar Guðni Bergs. var kjörinn formaður KSÍ þá fékk Ísland besta hugsanlega sendiherrann fyrir íslenska knattspyrnu sem völ var á. Það hefur ekki breyst.“
Pistill Harðar hefur vakið talsverða athygli og taka margir undir það sem hann skrifar. Í þeim hópi eru til dæmis Heimir Örn Árnason, fyrrverandi handknattleiksmaður og þjálfari, Kjartan Másson, þrautreyndur knattspyrnuþjálfari, Sigurður L. Hall matreiðslumeistari og Kristján Bernburg knattspyrnuþjálfari. Þá tekur Bergur Guðnason, sonur Guðna Bergssonar, undir og segir: „Vel orðað Hörður. Takk fyrir þetta!“
Bergljót Davíðsdóttir fjölmiðlakona tekur einnig undir og segir að illa sé hægt að sætta sig við að hvaða kona sem er geti komið fram í fjölmiðlum og borið fram ásakanir á hendur mönnum vegna atburða sem áttu sér stað fyrir löngu.
„Og þar með hefur sú kona bein áhrif á skipan landsliðs Íslands í knattspyrnu, sem [er] hreint galið. Gott og vel, vissulega eiga konur ná fram rétti sínum, en það hefur tíðkast allar götur að um slík mál er ekki fjallað fyrr en eftir rannsókn og þá ákært í kjölfarið ef rannsókn sýnir fram á að líkur séu á að viðkomandi ná fram rétti, sínum. En að hvað kona sem er geti pantað viðtal í fjölmiðlum og borið fram sakir á menn og þar með valið hverjir skipi landslið okkar hverju sinni er gjörsamlega fatalt,“ segir hún meðal annars.