Her­bert bankaði upp á hjá Júlían í gær­kvöldi – Heim­sókninni gleymir Júlían seint

„Her­bert Guð­munds­son bankaði upp á í gær­kvöldi og til að gera langa sögu stutta á ég núna geisla­diska og dvd mynda­safn af öllum hans helstu smellum,“ segir Júlían J. K. Jóhanns­son, kraft­lyftinga­maður og í­þrótta­maður ársins 2019, í skemmti­legri færslu á Twitter.

Þetta væri svo sem svo ekki í frá­sögur færandi nema fyrir það sem Júlían segir í kjöl­farið og hefur fengið marga til að brosa: „Það sem ég á hins vegar ekki er geisla­diska- eða dvd spilari. En það er annað mál skilst mér.“

Her­bert er annálaður sölu­maður og eru þeir ef­laust ó­fáir Ís­lendingarnir sem hafa tekið á móti honum og jafn­vel keypt bók eða geisla­disk.

Í við­tali í hlað­varps­þætti Sölva Tryggva­sonar í nóvember­mánuði rifjaði Her­bert upp að hann hefði alltaf verið sölu­hæsti sölu­maðurinn hjá Erni og Ör­lygi. „Þegar ég hætti þar var ég búinn að selja bækur fyrir 380 milljónir!“

Það er því kannski ekki að undra að einn sterkasti maður landsins hafi verið eins og smjör í höndunum á Her­berti í gær­kvöldi. Þess má geta að Her­bert á af­mæli í dag og fagnar nú 67 ára af­mælis­degi sínum. Óskum við honum inni­lega til hamingju með daginn.