Hælisleitandinn Ali Alameri segist hafa stefnt Sjálfstæðisflokknum eftir að hann var handlangaður á opnum fundi flokksins um þriðja orkupakkann í apríl 2019. Hann segir héraðssaksóknara ekkert hafa gert í málinu í viðtali við Fréttablaðið.
Í viðtalinu segist Ali binda litlar vonir við að umsókn sín um dvalarleyfi verði samþykkt á Íslandi vegna málsins. Í myndbandi sem Vilhjálmur Þorsteinsson birti af fundinum má sjá hvar Ármann Kr. Ólafsson segir það óþarfi að hringja í lögregluna þar sem tveir menn á fundinum séu lögreglumenn.
„Hér óttast lögreglan opna rannsókn á þessu máli vegna þess að þetta er Sjálfstæðisflokkurinn og flokkurinn á dómsmálaráðherra. Svo ég mun sækjast eftir því að færa málið til Noregs. Því að Noregur er lýðræðisríki. Noregur er frjálst ríki og þar ber fólk virðingu fyrir lögunum,“ segir Ali við Fréttablaðið.
„Hér hélt ég að staðan væri sú sama. Að hér væri réttlæti. En það er ekkert réttlæti hér. Og ég er ekki hræddur við að segja það. Ég hef hitt marga Íslendinga og þeir segja nákvæmlega það sama. Þeir vita að það er spillingu að finna meðal allra stjórnmálamanna hér á Íslandi.
Meira að segja fólk sem þolir ekki innflytjendur, þau sem eru rasistar. Jafnvel þau segja að það sé spillingu að finna hjá yfirvöldum.“
Ali segir Ísland sé eins og ríki í Miðausturlöndum. „Mér líður eins og ég sé í Írak. Þar þýðir það að eiga vin meðal yfirvalda að þú munir hafa það gott, en ef þú átt ekki vin muntu verða fátækur. Þetta er raunveruleikinn. Ég hef félagsfærni, ég þekki fólk í kirkjunni hér og þekki fólk víðsvegar að úr samfélaginu og þau segja öll það sama,“ segir hann.
Viðtalið á vef Fréttablaðsins í heild sinni.