Her fólks kemur Klöru Bjart­marz til varnar: „Unnið glæsi­legt starf“

Mikill styr hefur staðið um Klöru Bjart­marz, fram­kvæmda­stjóra KSÍ, undan­farið. Í við­tali í tíu­fréttum RÚV í gær sagðist hún ekki ætla að láta af starfi þrátt fyrir að ýmsir hefðu krafist þess.

Krist­rún Heimis­dóttir lög­fræðingur kemur Klöru til varnar á Face­book.

„Klara var vara­for­maður Sam­takanna 78 þegar stórir sigrar unnust í þeirri bar­áttu og hefur leitt og fylgt eftir allri upp­byggingu kvenna­lands­liðanna í þau 27 ár sem hún hefur starfað hjá KSÍ. Hún hefur barist við ó­menningu og karl­rembu alla tíð. Hún er femin­isti, bar­áttu­kona fyrir homma, lesbíur og aðra minni­hluta­hópa og hefur alltaf og mun alltaf beita sér fyrir réttindum og vel­ferð þessara hópa,“ skrifar Krist­rún.

Hún veltir fyrir sér hvað fé­laginu Ís­lenskur topp­fót­bolti gangi til með að­för sinni að Klöru.

„Ís­lenskur topp­fót­bolti er karla­klúbbur sem hefur aldrei svo vitað sé haft á­hyggjur eða á­huga á kyn­bundnu of­beldi né sér­stakan á­huga þátt­töku kvenna í fót­bolta, heldur hinu að hags­munir ríkustu fé­laganna á Ís­landi fái meiri for­gang. Einungis stærstu fé­lögin fá að vera innan­borðs í ÍTF og kvennaknatt­spyrna er þar jaðar­sett,“ segir Krist­rún. Auknir peningar í fót­boltanum hafi skapað tog­streitu og margir á­líti hann einungis fjár­festinga­tæki­færi.

„Nú er það til í dæminu að líta á fót­bolta fyrst og fremst sem fjár­festinga­tæki­færi og gera út leik­menn í fjár­afla­skyni. Þá hverfur mennskan og fót­boltinn breytist í harðan heim þar milljóna­drengjum leyfist allt svo lengi sem þeir skora.“

Hún lýkur pistlinum svo­hljóðandi:

Að Ís­lenskur topp­fót­bolti grípi tæki­færi og nýti krísu til að taka völdin í KSÍ og ná yfir­ráðum yfir sjón­varps­peningum er ekki væn­leg leið til að út­rýma eitraðri karl­mennsku úr búnings­klefum fót­bolta­heimsins á Ís­landi, svo það sé sagt.

Meðal þeirra tæp­lega 200 sem líkar við færsluna eru Salvör Nor­dal, um­boðs­maður barna, Ólafur Stephen­sen, fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­enda, Guð­mundur Andri Thors­son þing­maður Sam­fylkingarinnar, Einar Kára­son rit­höfundur, Gerður Krist­ný rit­höfundur og Sig­rún Björk Jakobs­dóttir, fyrr­verandi bæjar­stjóri á Akur­eyri.