Þjóðskrá hefur tekið saman nýjar tölur um fjölda íbúa með erlent ríksifang sem búa hér á landi. Tölurnar eru flokkaðar eftir sveitarfélögum og landshlutum.
Hæst er hlutfall erlendra ríkisborgara í Mýrdalshreppi, 361 af 764 íbúum eða rúm 47 prósent. Þar næst er hlutfallið hæst í Skaftárhreppi, 33,2 prósent og síðan Súðavíkurhreppi, tveimur prósentustigum lægra. Lægst er hlutfallið í Árneshreppi en þar er aðeins einn erlendur ríkisborgari skráður til búsetu eða 2,5% íbúa.
Ef horft er til landshluta er hlutfall erlendra ríkisborgara hæst á Suðurnesjum eða 23,4 prósent en lægst á Norðurlandi eystra, aðeins 8,2%. Á höfuðborgarsvæðinu er hlutfallið 13,2%.