Heppilegt viðhorf Stefáns

„Lykilatriði varðandi ótta er að hann er sjaldnast rökréttur,“ sagði Stefán Pálsson sagnfræðingur á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi, rétt eftir að nokkuð snarpur jarðskjálfti hafði riðið yfir á Reykjanesi.

„Við óttumst hnífamorðingjann sem drepur okkur í sturtunni eða hákarlinn sem klippir okkur í tvennt í flæðarmálinu en ekki vitlausu lyfjaafgreiðsluna í apótekinu eða svifrykið á Miklubrautinni sem mun verða okkar bani í raun og veru.“

Stefán segir í færslu sinni að hann hafi aldrei náð að verða hræddur við jarðskjálfta á Íslandi. Bara aldrei.

„Ég verð lítill kútur í ofsaveðrum og smeykur um rúðan splundrist í næstu kviðu eða að þakplata fjúki af næsta húsi og sneiði mig í tvennt - en gagnvart jarðskjálftum hef ég aldrei séð neitt verra en tvö glös uppí hillu klingja og aldrei tengt við ótta um að næst muni kofinn hrynja til grunna,“ segir Stefán sem endar færsluna á skemmtilega kaldhæðinn hátt.

„Þetta er líklega heppilegt lífsviðhorf hjá manni sem býr í kjallara í blokk með fjórar hæðir fyrir ofan sig.“