Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, þótti býsna harður í horn að taka á glæstum ferli sínum sem atvinnumaður.
Hemmi eins og hann er jafnan kallaður þykir einnig hress og skemmtilegur og honum þykir fátt skemmtilegra en að fara í góðan gamnislag. Hemmi er nú þjálfari annarrar deildar liðs Þróttar í Vogum sem voru býsna nálægt því að fara upp um deild í fyrrasumar.
Skemmtilegt myndband birtist af Hemma og Þróttaranum glerharða, Gunnari Helgasyni, á Twitter í gær. Gunnar, sem Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri félagsins kallar eiganda Þróttar í Vogum, skoraði á Hemma í gamnislag og er óhætt að segja að hart hafi verið tekist á.
Marteinn segir í athugasemd undir myndbandinu að jafntefli hafi verið niðurstaðan í hörkubardaga.
Eins og að framan greinir þykir Hemma fátt skemmtilegra en góður gamnislagur. Í viðtali við Þorgrím Þráinsson fyrir 24 stundir árið 2008 var rifjað upp eftirminnilegt atvik sem átti sér stað þegar Geir Þorsteinsson var kjörinn formaður KSÍ fyrir margt löngu. Hermann hóf hann á loft í veitingasal Hótels Loftleiða og slengdi honum í gólfið áður en hann henti sér ofan á hann.
„Það er alltaf gaman að sjá viðbrögð manna og kanna úr hverju þeir eru gerðir,“ sagði Hemmi í viðtalinu og bætti við:
„Slagsmál eru ein besta leiðin til að kynnast fólki og ég hef tileinkað mér þennan samskiptamáta hjá öllum liðum sem ég hef leikið með. Það hefur ekki allsstaðar fallið jafn vel í kramið.“
Eigandi Þróttar Vogum, geitabóndinn Gunnar Helgason skoraði Hemma Hreiðars á hólm 🙏🙏🙏
— Marteinn Ægisson (@MarteinnAegis) February 24, 2021
Það er fjör í Vogum 🤣🤣🤣#fotboltinet pic.twitter.com/dFfcxYAlbA