Hemmi Gunn hefði orðið 75 ára í dag

Einn af okkar allra bestu mönnum, Hermann Gunnarsson, betur þekktur sem Hemmi Gunn, hefði orðið 75 ára í dag hefði hann lifað.

Það er í raun óþarfi að hafa mörg orð um þá hæfileika sem bjuggu í Hemma, en hann var landsþekktur íþróttamaður, skemmtikraftur og þáttastjórnandi og þekktur fyrir sinn smitandi hlátur. Hemmi lést þann 4. júní 2013, 66 ára að aldri.

Hemmi var ungur að árum þegar hann fór að láta að sér kveða í íþróttum, bæði handbolta og fótbolta, og lék hann til dæmis fyrir bæði landsliðin og Val á gullaldarárum félagsins. Um langt skeið átti hann metið yfir flest mörk skoruð í einum landsleik í handbolta.

Hann starfaði síðan sem íþróttafréttamaður og skemmtikraftur og söng inn á hljómplötur svo fátt eitt sé nefnt. Þáttur hans, Á tali hjá Hemma Gunn, er líklega einn vinsælasti skemmtiþáttur í sögu íslensku þjóðarinnar.

Hemmi átti ófáa vini og óhætt að segja að margir sakni þessa einstaka manns.