Helsti myndlistarmaður þjóðarinnar, Jón Óskar, er vonsvikinn yfir borðsiðum kokkalandsliðsins og lætur það í ljós á Facebook síðu sinni.
Þar er ljóst að um góðlátlegt grín að ræða en það vekur mikla athygli. „Þetta er náttúrlega svakalegt! Það kann enginn dómari í kokkalandsliðsvalinu að halda á hnífapörum!!!“ skrifar Jón.
Hann merkir nokkra vel valda vini. „Við sem komin erum af betri heimilum látum ekki bjóða okkur þetta!“