Helmingur af hrá­efni fisk­markaða fer ó­unninn úr landi

Helmingur af þeim afla sem boðinn er upp á ís­lenskum fisk­mörkuðum er sendur ó­unninn úr landi, alls um 50 þúsund tonn – og hefur magnið fari vaxandi á síðustu árum. Sér­staka at­hygli vekur í þessum efnum að út­flutningur á ó­unnum þorski hefur aukist um 80 prósent á síðustu árum.

Lilja Raf­n­ey Magnús­dóttir, for­maður at­vinnu­vega­nefndar Al­þingis hefur vakið at­hygli á þessari þróun, en hún segir hana baga­lega, einkum og sér í lagi fyrir fisk­vinnslur án út­gerðar sem eigi erfiðara en ella að afla sér hrá­efnis. Fyrir margar vinnslur sé þetta hrein­lega spurs­mál um nægi­legan afla til að geta haldið fólki í vinnu. Þar fyrir utan sé það frá­leitt um­hverfis­vænt að flytja ó­unninn fisk úr landi.

Lilja Raf­n­ey, sem er gestur frétta­þáttarins 21 á Hring­braut í kvöld, segir að at­vinnu­vega­nefnd hafi kallað til fjöl­marga hags­muna­aðila í sjávar­út­vegi vegna þessa máls á síðustu vikum og muni halda á­fram að kalla eftir skýringum á þessari ó­heilla­þróun. Sjálf velti hún því fyrir sér hvort ís­lenskir út­gerðar­menn sjái hag sinn í því að koma ó­unnum fiski af Ís­lands­miðum í sínar eigin fisk­vinnslur í austan­verðri og sunnan­verði Evrópu þar sem vinnu­afl er ó­dýrara en á Ís­landi. Í öllu falli skjóti það skökku við að tug­þúsundir af ó­unnum fiski fari úr landi á hverju ári á meðan at­vinnu­leysi blasi við fjöl­mörgum lands­mönnum, hringinn í kringum landið.