Helgu Völu Helgadóttur, þingkonu Samfylkingarinnar, er ekki skemmt yfir fréttum þess efnis að hvorki fleiri né færri en 700 nemendur fái ekki skólavist í Tækniskólanum eftir að hafa sótt þar um nám í vor.
Í fréttum RÚV í gærkvöldi var greint frá því að aldrei hafi fleiri sótt um nám í skólanum og kallaði Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans, eftir skýrri stefnu stjórnmálamanna í þessum málaflokki til næstu ára.
Þessi mikla aðsókn er meðal annars rakin til hvatningarátaks þar sem markmiðið var að hvetja ungt fólk til að skrá sig í iðnnám. Sagði Hildur að skólinn væri aftur á móti yfirfullur. „Það sem búið er að tala fyrir er að takast en við erum ekki bara alveg tilbúin, “ sagði hún.
Helga Vala viðraði áhyggjur sínar af þessari stöðu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi þar sem hún sagði:
„Árum saman hefur menntamálaráðherra hvers tíma og aðrir ráðamenn talað um mikilvægi þess að efla iðn- og verkmenntun. Farið var í átak en svo gleymdi ríkisstjórnin bara sínum hluta átaksins. Hvaða afleiðingar haldið þið að kunni að verða af því þegar hvorki fleiri né færri en 700 nemendur fá ekki inni? Þetta er bara alls ekki í lagi.“