Helgi vandar Þorbirni ekki kveðjurnar: „Ógeðfelldir hlutir“

Blaðamaðurinn Helgi Seljan er í helgarviðtali Mannlífs þar sem hann ræðir ítarlega um Samherjamálið og árásirnar sem hann varð fyrir í kjölfar umfjöllunar um meinta mútustarfsemi í Namibíu.

„Það, að farið sé í skipulega herferð og beinar árásir eins og þarna var gert og opinberaðist skýrt síðasta vor, er eitthvað annað, meira og verra en við getum sætt okkur við,“ sagði Helgi um viðbrögðin sem komu frá Samherja.

„Já, og ógeðfelldir hlutir; greinaskrif þar sem menn veltu sér upp úr geðheilsu minni,“ sagði hann.

Vísar hann svo í samtöl skæruliðasveitar Samherja og vandar hann almannatenglinum og lögmanninum Þorbirni Þórðarsyni ekki kveðjurnar:

„Hann skrifaði greinar upp í kjaftinn á einhverjum gæja á Akureyri og svo eru samskipti þeirra á milli, þar sem Þorbjörn er að gorta sig af því að vera að drótta að geðheilsu minni. Það var greinlega verið að koma á mig höggi með því að það þyrfti geðlækni til að meta mig vegna þráhyggju sem ég væri með.“

Miðað við allt sem gekk á segir Helgi að hann hafi ekki haft hugmyndaflug í að halda að verið væri að eyða svona miklum tíma í að grafa undan blaðamönnunum:

„Það hefur verið landlægt á Íslandi að allir sem hafa sett sig upp á móti og farið harkalega upp á afturlappirnar gegn tilteknu valdi, hafi oftar en ekki fengið fljótt á sig það orð að vera geðveikir; um þá er dreift alls konar ljótum sögum. Þannig að ég er ekki fyrsti maðurinn sem lendir í þessu. En það sýnir líka bara hvað menn eru tilbúnir að gera og hvað menn telja eðlilegt að gera þegar þeim er stillt upp við vegg og þeir beðnir um að svara spurningum um gjörðir sínar.“