Helgi Seljan var fljótur að fá nýtt starf

Það vakti athygli margra nú í hádeginu þegar tilkynnt var að Helgi Seljan hefði sagt upp störfum hjá RÚV. Helgi hefur um árabil verið einn öflugasti fréttamaður landsins og því ljóst að um mikinn skell væri að ræða hjá RÚV.

En Helgi var ekki lengi atvinnulaus því Stundin greinir frá því að hann hafi verið ráðinn þangað.

Frekari breytingar eru fyrirhugaðar á Stundinni því Jón Trausti Reynisson mun stíga úr stóli ritstjóra og verða eingöngu framkvæmdastjóri Útgáfufélagsins og blaðamaður á ritstjórn. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir verður áfram ritstjóri og mun hér eftir sinna því starfi ein.