Helgi Seljan, einn af lykilstarfsmönnum RÚV og fréttamaður í Kveik, hefur sagt upp störfum. Kjarninn greinir frá þessu og vísar í færslu sem Helgi birti inni á lokuðu vefsvæði starfsmanna RÚV þar sem hann greindi frá ákvörðuninni.
Helgi hefur verið í leyfi frá störfum að undanförnu en mun ekki snúa aftur til starfa að því loknu. Í tilkynningunni, sem Kjarninn vísar til í frétt sinni, segir Helgi:
„Ég mat það bara sem svo að nú væri rétti tíminn til að takast á við nýjar áskoranir á nýjum stað. Ég ætla þó ekki að halda því fram að atburðarrás undanfarinna missera hafi ekki haft nein áhrif á að ég yfirleitt fór að velta þessum möguleika fyrir mér. Ég skil þó við RÚV sáttur við allt og alla, vitandi það að öll höfum við lært og munum draga lærdóm af því sem gengið hefur á.“
Nánar á vef Kjarnans.