Blaðamaðurinn Helgi Seljan er í helgarviðtali Mannlífs þar sem hann ræðir ítarlega um Samherjamálið og árásirnar sem hann varð fyrir í kjölfar umfjöllunar um meinta mútustarfsemi í Namibíu.
Hann segir að stjórnendur RÚV hafi ekki stungið sig í bakið, heldur hafi þeir gert mistök í málinu:
„Bara til dæmis það að taka ekki fastar á móti. RÚV ákvað að taka þessum árásum eins og þær væru hvert annað erindi sem bærist stofnuninni, sem þær voru auðvitað ekki. Þetta voru skipulagðar árásir, eins og kom seinna í ljós. Það er fullkomlega galið hvernig að þessu var staðið; að dreifa greinum og það voru allir sótraftar landsins dregnir á flot og skrifaðar greinar og birtar í blöðunum með einhverjum skít. Svo kom í ljós seinna, að á bak við þetta voru svo topparnir hjá Samherja,“ sagði Helgi.
„Svo er það að RÚV ákvað til dæmis að afhenda Samherja – eins og það væri verið að selja hvert annað efni – þættina okkar sem þeir gátu síðan notað án þess að það væru nokkur skilyrði fyrir þeirri notkun. Þetta var síðan klippt og birt einhvern veginn í einhverjum YouTube-myndböndum Samherja. Þeir keyptu þessa dreifingu og í sjálfu sér gæti mér ekki verið meira sama í hvað Samherji eyðir peningunum sínum, en það að RÚV hafi afhent þeim höfundarréttarvarið efni okkar án nokkurra skilyrða til þess að nota myndir af okkur – það er kallað „stand up“ þar sem við stöndum í mynd – og leyfa þeim að klippa þetta og gera!“
Helgi ræddi þetta við kollega á Norðurlöndunum sem sögðu að þetta væri hvergi gert.
Helgi var spurður hvort þetta hljóti ekki að vera á ábyrgð Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra:
„Endanlega er það það. Þetta eru hlutir sem menn voru of lengi að átta sig á að næðu auðvitað ekki nokkurri átt.“
Stefán var einnig í viðtali við Mannlífþar sem hann var spurður hvort hann stæði ekki með Þóru Arnórsdóttur fréttamann sem hefur réttarstöðu sakbornings. „Ég stend að sjálfsögðu á bak við mitt fólk en þetta er bara mál sem er í farvegi þannig að það er ekki mikið meira um það að segja,“ sagði hann.