Helgi Seljan segir Samherjamenn hafa ráðist á Jóhannes – Enginn stigið fram til að verja hann

Rannsóknarblaðamaðurinn Helgi Seljan segir að enginn hafi stigið fram til að verja Jóhannes Stefánsson uppljóstrara í Samherjamálinu og enginn hafi lyft fingri þegar Samherjamenn hafi ráðist á hann með sögusögnum og ærumeiðingum.

Helgi fór yfir þetta íviðtali við Mannlíf þar sem hann ræddi um árásir Samherja í kjölfar umfjöllunar Kveiks um starfsemi fyrirtækisins í Namibíu:

„Þeir hafa ekkert sett fram máli sínu til stuðnings. Jafnvel þó að það væri, þá veltir maður því fyrir sér, af hverju hefur enginn sagt neitt við því að aðalvörnin þeirra við þessum ásökunum snúist um það að bera út ósannaðar kjaftasögur um að einhver hafi farið á fyllerí. Átti að hafa misnotað eiturlyf, sem eru líka fullkomnar tröllasögur. Af hverju spurði enginn, hvað kemur þetta málinu við?,“ spyr Helgi.

„Þarna er svo augljóslega verið að ráðast á, hreinlega knésetja einstakling og persónu hans fyrir það eitt að stíga fram og segja frá.“

Helgi setur stórt spurningamerki við að enginn hafi sagt neitt:

„Það er engin vörn fyrir þessu. Það hefur enginn stigið fram og sagt neitt um Jóhannes, sem ég ætla að leyfa mér að segja að sé með heimsteyptari mönnum sem ég hef kynnst og þær lýsingar sem hafa komið frá Samherja af honum eru þveröfugar af því sem ég hef kynnst. Það hefur enginn stjórnmálamaður á Íslandi, ekki neinn af lögfræðingum okkar sem eru alltaf að verja réttarkerfið, öll þessi samtök okkar, það hefur aldrei neinn stigið fram. Enginn hefur gert handtak í vörn fyrir þennan mann. Samt vitum við að þetta er maðurinn sem er búinn að leggja þetta á sig og miklu meira en ætlast er til að nokkur maður geri, fyrir ekki neitt, til þess að koma upp um þetta mál.“

Ráðamenn hafi verið áhugasamari um að ræða við Samherjamenn en Jóhannes:

„Það voru ekki liðnar margar vikur þangað til ráðherrar í ríkisstjórn sáu ekkert að því að sitja og spjalla við þessa menn, taka fundi með þeim. Það hafa ekki margir stjórnmálamenn, hvað þá í ríkisstjórnarflokknum, séð ástæðu til að hitta Jóhannes Stefánsson. Það segir allt sem segja þarf.“