Aðgerðarsinnahópurinn Jæja hélt áfram að blanda sér í formannskjör Eflingar í dag er Jæja birti færslu þar sem er fullyrt er að Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður stéttarfélagsins og Viðar Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar, hafi afhjúpað spillingu innan lífeyrissjóðanna. Facebook síðan hefur verið dugleg á síðustu dögum að birta færslur til að styðja við Sólveig Önnu sem sækist nú eftir því að verða formaður Eflingar aftur.
„Deildu ef þú vilt láta rannsaka spillinguna innan lífeyrissjóðanna — Sólveig Anna og Viðar Þorsteinsson afhjúpaðu hundruð milljóna sjálftöku í tengslum við fyrirtækið Init,“ skrifar Jæja á facebook en um 19 þúsund manns fylgja hópnum á samfélagsmiðlinum.
Í langri færslu er látið eins og Sólveig og Viðar hafi uppljóstrað um bókhaldsbrellur hjá stjórnendum lífeyrissjóðanna.
Deilir hópurinn afar dramatískri mynd af Sólveigu þar sem segir „Sólveig afhjúpaði hundruð miljóna sjálftöku innan lífeyrissjóðanna.“
Þekktasti rannsóknarblaðamaður Íslands, Helgi Seljan, segir þetta hins vegar „haugalygi“ hjá Jæja hópnum.
„Þetta er einfaldlega haugalygi. Sólveig afhjúpaði ekki neitt í þessu INIT-máli,“ skrifar Helgi á twitter og deilir myndinni enda var það fréttaskýringarþátturinn Kveikur sem afhjúpaði málið.
Þetta er einfaldlega haugalygi. Sólveig afhjúpaði ekki neitt í þessu INIT-máli. pic.twitter.com/ip1cxlEhcc
— Helgi Seljan (@helgiseljan) February 8, 2022