„Það er eitthvað furðulegt vipe í þessari ríkisstjórn. Ef sex ráðherrar þurfa nauðsynlega að mæta saman á blaðamannafund til að tilkynna um tilslakanir á ferðabanni, er annað hvort ekkert að gera eða allir skíthræddir um sína stöðu.“
Þetta segir fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan á Twitter-síðu sinni. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra boðaði til blaðamannafundar með skömmum fyrirvara í gær um afléttingu ferðatakmarkanna.
Athygli vakti að auk Katrínar voru ráðherrarnir Þórdís Kolbrún Reykförð Gylfadóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Svandís Svavarsdóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir viðstödd. Katrín kynnti aðgerðir ríkisstjórnarinnar á meðan hinir ráðherrarnir fimm stóðu kyrrir.
Í umræðum undir Twitter-færslu Helga bendir einn á að hugsanlega hafi allir viljað vera í mynd þegar góðu fréttirnar eru sagðar. „Það að einhver vilji og það sé látið eftir viðkomandi, er svo allt annar hlutur. Þetta er bara silly,“ svarar Helgi.
Í umræðum bendir einn á að fréttatilkynning hefði verið nóg. Annar segir að allir „vilji taka kredit“ og allt lykti þetta af óöryggi ráðherranna.
Þess má geta að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir var einnig á fundinum þó hann hafi ekki stillt sér upp við hlið ráðherrana.
Það er eitthvað furðulegt vipe í þessari ríkisstjórn. Ef sex ráðherrar þurfa nauðsynlega að mæta saman á blaðamannafund til að tilkynna um tilslakanir á ferðabanni, er annað hvort ekkert að gera eða allir skíthræddir um sína stöðu.
— Helgi Seljan Jóhannsson (@helgiseljan) May 12, 2020