Helgi Seljan boðar nýjar upplýsingar um Samherja: „I have nothing to say to you“

„Rannsókn Samherjaskjalanna er umfangsmikil og teygir anga sína til fjölda landa og enn eru nýjar upplýsingar og ásakanir á hendur fyrirtækinu að koma fram,“ segir Helgi Seljan, einn af umsjónarmönnum fréttaskýringaþáttarins Kveiks, í stiklu fyrir nýjan þátt sem sýndur verður á morgun.

Kveikur hefur fjallað ítarlega um málefni Samherja undanfarin misseri, en skemmst er að minnast ítarlegrar umfjöllunar um málefni Samherja í nóvember 2019 – umfjöllun sem forsvarsmenn Samherja brugðust harkalega við.

Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvert umfjöllunarefni Kveiks verður en í stiklunni er birt brot úr viðtali við Ólaf Þór Hauksson héraðssaksóknara en embættið hefur verið með mál Samherja í Namibíu til skoðunar og meintar mútugreiðslur til embættismanna þar í landi.

„Það sem við erum kannski fyrst og fremst að skoða er hver ber ábyrgðina, hver gerði hvað og með hvaða hætti þessi félög koma þar inn í,“ segir Ólafur í stiklunni. Þá sést Helgi Seljan ræða í gegnum fjarfund við erlendan einstakling sem segir við hann: „I have nothing to say to you“

Loks sést þegar rætt er við tvo menn sem vanda Íslendingum ekki beint kveðjurnar. „Hrokinn og óskammfeilnin í viðskiptaháttum Íslendinganna sýna að þeir töldu sig vera ósnertanlega.“

Kveikur er á dagskrá RÚV annað kvöld.