Helgi segir þetta á­stæðuna fyrir að meiri­hlutinn getur ekki efnt lof­orðin: „Núna skil ég betur hvers vegna móðirin dæsti svona mikið“

Helgi Áss Grétars­son, sem situr í skóla- og frí­stundar­ráði Reykja­víkur­borgar fyrir hönd Sjálf­stæðis­flokksins, segir ó­mögu­legt fyrir nýjan meiri­hluta í Reykja­vík að efna kosninga­lof­orðiní nýrri grein á Vísi.

„Í að­draganda ný­af­staðinna borgar­stjórnar­kosninganna var mér tjáð af þriggja barna móðir á fer­tugs­aldri að því hefði oft verið lofað að „öll börn í Reykja­vík fái leik­skóla­pláss frá 12 mánaða aldri“ og eftir að hafa lagt á­herslu á þessi orð sín, dæsti hún veru­lega. „Já, fal­leg kosninga­lof­orð, er ekki bara best að and­varpa þegar maður heyrir þau?“ skrifar Helgi.

„Eitt af ein­kennum stjórnunar­hátta nú­verandi borgar­stjóra er að hann kippir sér ekki við að lofa öllu fögru, jafn­vel þótt aug­ljóst megi vera að úti­lokað sé að efna lof­orðin.

Nýjasta dæmið um þessa nálgun er það lof­orð sem flokkur borgar­stjórans, Sam­fylkingin, og hans þá­verandi sam­starfs­flokkar, gáfu í að­draganda áður­nefndra borgar­stjórnar­kosninga, nefni­lega að hinn 1. septem­ber nk. verði hægt „að bjóða öllum 12 mánaða börnum vistun“ á leik­skóla, sbr. t.d. til­lögu borgar­stjóra sem þá­verandi meiri­hluta­flokkar sam­þykktu í borgar­ráði 3. mars síðast­liðinn,“ bætir hann við.

Hann segir Sjálf­stæðis­flokkinn hafa beint á það fyrir kosningar að það væri ó­raun­hæft að reikna með að öll 12 mánaða börn gætu hafið leik­skóla­göngu nk. haust. „Hinir „heiðar­legu“ Píratar kölluðu þann mál­flutning ó­heiðar­legan. Ein­mitt,“ skrifa Helgi.

„Stað­reyndir málsins hafa núna verið gerðar kunnar, úti­lokað er að öll 12 mánaða gömul börn fái boð að ganga í leik­skóla í Reykja­vík að hausti komanda. Hvers vegna? Jú, for­sendur frá byrjun mars sl. höfðu tekið slíkum breytingum að ó­víst er „að öll börn fædd í septem­ber á síðasta ári k[o]m[i]st inn í septem­ber á þessu ári en við bindum engu að síður vonir við að komast lang­leiðina þangað“, sbr. um­mæli borgar­stjóra í sjón­varps­frétta­við­tali við RÚV 14. júní síðast­liðinn.“

„Sem sagt, út­reikningar sem fram­kvæmdir voru af reikni­meisturum Ráð­húss Reykja­víkur um fjölda leik­skóla­plássa sem í boði yrðu 1. septem­ber nk. og fjölda um­sókna um þau pláss, urðu halds­lausir þrem mánuðum síðar. Það heppi­lega við þessi af­drif út­reikninganna, fyrir borgar­stjóra, er að þau voru kynnt eftir kosningar.“

„Núna skil ég betur hvers vegna móðirin dæsti svona mikið,“ skrifar Helgi að lokum.