Helgi segir meiri­hlutann ó­vin einka­bílsins: „Um­ferðar­tafir eru ó­þarf­lega miklar“

Helgi Áss Grétars­son, lög­fræðingur og fram­bjóðandi Sjálf­stæðis­flokksins í borginni segir stjórnar­hættir vinstri meiri­hlutans í borginni hafa ein­kennst af draum­órum upp á síð­kastið.

„Reykja­víkur­borg hefur verið stýrt af vinstri flokkum um langt skeið. Andi stjórnunar­háttanna undan­farin ár hefur að mínu mati ein­kennst of mikið af hug­mynda­fræði­legum draum­órum. Við­horfið til einka­bílsins er skýrasta dæmið um þetta. Með allt að því mark­vissum hætti hefur verið staðið gegn upp­byggingu stofn­brauta­kerfisins og víða hefur verið þrengt að um­ferð einka­bílsins. Lappirnar hafa verið dregnar við að tryggja þjóð­hags­lega hag­kvæmar fram­kvæmdir, svo sem eins og Sunda­brautina. Vöntun á slíkum fram­kvæmdum dregur einnig úr upp­byggingu nýrra hverfa,“ skrifar Helgi í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

„Til verður lóða­skortur sem er til þess fallinn að hækka fast­eigna­verð, svo sem margir finna á eigin skinni þessa dagana. Stað­reyndir og raun­sæi í stað skýja­borga Í skýrslu um til­rauna­verk­efni um eflingu al­mennings­sam­gangna á höfuð­borgar­svæðinu 2012-2022, sem kom út í árs­byrjun 2021, kom m.a. fram að árið 2019 voru 982 fólks­bif­reiðar á skrá á hverja þúsund íbúa en þær voru 570 árið 2011. Þessi töl­fræði, á­samt öðrum tölu­legum gögnum, sýnir að í­búar á höfuð­borgar­svæðinu vilja nota einka­bílinn,“ bætir hann við.

Helgi segir að þrátt fyrir mikinn til­kostnað undan­farinn ára­tug hefur lítið gengið að auka hlut al­mennings­sam­gangna. „Samt er haldið á­fram á þeirri veg­ferð að út­færa lausn á vanda sam­göngu­kerfis höfuð­borgar­svæðisins í krafti hug­mynda­fræði en ekki stað­reynda.“

„Í grein sam­göngu­verk­fræðingsins Þórarins Hjalta­sonar, „Góðar sam­göngur eru fyrir alla“, sem birt var 7. janúar sl. á kjarninn.is, er með ítar­legum hætti fjallað um fyrir­liggjandi út­færslu á borgar­línunni. Saman­burður er gerður á þeim fyrir­ætlunum við reynslu borga í Norður­Ameríku sem eru sam­bæri­legar að stærð og höfuð­borgar­svæðið.“

„Niður­staðan er skýr, fyrir­liggjandi út­færsla borgar­línu­verk­efnsins er ó­skyn­sam­leg miðað við aðra val­kosti. Kjarni málsins Um­ferðar­tafir, sér­stak­lega á háanna­tímum, eru núna ó­þarf­lega miklar. Fyrir þessu á­standi eru rök­réttar á­stæður. Það hefur skort á fjár­festingu í sam­göngu­inn­viðum fyrir einka­bílinn. Úr þessu þarf að bæta. Slíkar fram­farir í þágu um­ferðar einka­bílsins úti­loka ekki leit að hag­nýtum leiðum til að auka nýtingu al­mennings­sam­gangna og annarra sam­göngu­máta, svo sem fyrir gangandi veg­far­endur og reið­hjóla­fólk. Breytinga er þörf við stjórn Reykja­víkur­borgar. Hug­mynda­fræði­legar kreddur eiga ekki að stýra för. Það er kjarni málsins,“ skrifar Helgi að lokum.